Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
17.3.2008 | 12:41
Frábær helgi afstaðin.
Já það má sko segja það að þessi helgi hafi verið frábær. Ég byrjaði laugardaginn á því að fara til Sunnu kl. átta um morguninn, já um morguninn!!!, og við fórum út að skokka/labba. Það var alveg æðislegt og þvílíkt hressandi að byrja daginn svona. Þegar við vorum búnar með hringinn fór ég heim og vakti strákana mína og við tókum okkur til fyrir sundið. Sundtíminn var mjög fínn og Hannes Haukur stóð sig mjög vel. Það voru teknar myndir af þeim í kafi en minn maður var nú ekki neitt að fylgjast með þessari myndavél, botninn á sundlauginni var mun merkilegri en það náðist samt ágætis mynd af honum. Eftir sundið fórum við heim og HH fékk sér smá kríu og eftir það var haldið í fermingarveislu hjá frændsystkinum hans. En þar með var nú dagurinn ekki búinn!! Eftir veisluna fórum við heim og HH náði að hvíla sig aðeins og svo kom Auðbjörg amma til þess að passa litla stubb af því við Óli vorum að fara í annað boð. Það var heima hjá Sunnu og Sigurjóni og vorum við að fara að borða með þeim og tveimur öðrum vinapörum, eða einu og hálfu þetta kvöld;) Það var hreint út sagt frábært og frábær matur eldaður af henni Sunnu. Takk kærlega fyrir okkur enn og aftur þetta var æðislegt:) Svo var nú sunnudagurinn bara tekinn í smá leti;) Var á fullu að lesa Harry Potter og er farin að nálgast endirinn sem mér líst nú ekki neitt á, langar ekki að vera búin með þessa bók. Svo um kvöldið var hringt í mig frá HH ráðgjöf en ég skráði mig hjá þeim og það er voða gott að vita af því að það er verið að vinna í umsóknum manns, en ekki að maður sendi inn umsóknir og svo ekki neitt meira. Svo verð ég bara að vera dugleg að fylgjast með auglýsingum frá þeim, hvort það komi eitthvert starf sem mér líst vel á og langar að sækja um.
Svo er bara kominn mánudagur og ný vika hafin og ný tækifæri framundan:) Maður verður bara að bera sig eftir þeim, ekki alltaf sem þau koma bara til manns. En þetta er nú komið nóg hjá mér núna. Kveðja til allra sem lesa mig;) María.
Um bloggið
María Narfadóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Fjölskylda og vinir
- Björgvin Haukur Bróðir minn, flugmaðurinn
- Hannes Haukur Elsku fallegi sonurinn minn
- Narfi Freyr Bróðir minn, smiðurinn
- Hildur Elísabet Vinkona úr HÍ
- Þóra fararstýra Vinkona mín úr HÍ
Englabossar
- Alexandra Nótt og Sævar Óli Litlu krílin hennar Siggu
- Andrés Blær og Inga Dís Börnin þeirra Guðjóns og Þóru, vina okkar
- Ólafur Darri Sonur Sunnu vinkonu
Áhugavert
- Barnaland Allt um barnið á netinu.
- Facebook Hér eru allir vinirnir;)
- Hafnarfjörður Hér bý ég.
- Hrísey Hér ólst ég upp og hér búa foreldrar mínir.
Fyrir mig
- Ágætis afþreying ef mér leiðist mjög mikið:) leikir á netinu.
- Byr Sparisjóðurinn í Hafnarfirði.
- Síminn vefpósturinn minn.
- Sparisjóðurinn Heimabankinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar